Vottað námskeið í notkun GRI staðla
Hvar: Hús Atvinnulífsins
Hvenær: 9 og 10 mars 2020
Námskeiðsgjald: £1300. (flest stéttarfélög niðurgreiða námskeið – kannaðu rétt þinn)
Á námskeiðinu verður farið ýtarlega í samfélagsábyrgð fyrirtækja og skipulagsheilda og mikilvægi þess að axla ábyrgð og hafa uppbyggileg áhrif á umhverfið, stjórnarhætti og samfélagið.
Global Reporting Initiative, eða GRI staðlarnir eru alþjóðlega viðurkenndir staðlar um miðlun upplýsinga um samfélagslega ábyrgð og eru notaðir í yfir 100 löndum. 80% af 250 stærstu fyrirtækjum heims nota GRI staðlana í sinni skýrslugjöf. GRI staðlarnir eru taldir víðtækustu og nákvæmustu staðlarnir til að halda utan um efnhahagsleg, umhverfisleg og félagsleg áhrif fyrirtækja og stofnanna. UN Global Compact og Nasdaq mæla með að nota staðalana við gerð samfélagsskýrslna. Vinningshafar Samfélagsskýrslu ársins á Íslandi 2018 og 2019 byggðu skýrslur sínar á GRI.
Markmið námskeiðsins er fyrir þáttakendur að skilja hvernig hægt er að nýta staðlana sem verkfæri við gerð samfélagsskýrslna.
Á þessu tveggja daga námskeiði munu þátttakendur fá ýtarlega þekkingu á GRI hugmyndafræðinni og læra að gera samfélagsskýrslu sem byggð er á GRI stöðlunum:
- Hvað GRI stendur fyrir og hvernig samfélagsskýrslur eru byggðar á GRI stöðlunum.
- Greina hver áhrif þitt fyrirtæki/skipulagsheild hefur á umhverfið, efnahag og samfélag.
- Hvernig er hægt að nota GRI staðalana til að ná samkeppnisforskoti?
- Hvernig GRI staðlarnir tengjast UN Global Compact, Nasdaq, og heimsmarkmiðum Sameinuðu Þjóðanna?
- Að námskeið loknu munu þátttakendur hafa öðlast þekkingu til að byrja undirbúning samfélagsskýrslu samkvæmt GRI stöðlunum.
- Námskeiðið nýtist sem undirbúningur undir GRI staðla prófið hjá Global Reporting Initiative.
Leiðbeinendur
- FBRH ráðgjafar hafa um árabil veitt ráðgjöf í samfélagslegri ábyrgð og þjálfað starfsfólk fyrirtækja víða um heim í notkun GRI staðla við gerð samfélagsskýrslna. FBRH eru vottaðir þjálfunaraðilar af Global Reporting Initiative (GRI) en einnig hafa þeir hlotið viðurkenningu frá Institute of Environmental Management and Assessment (IEMA) í Bretlandi.
Hér má finna lista yfir þau fyrirtæki sem FBRH hefur þjáfað: https://fbrh.co.uk/en/clients-trained-by-fbrh
Skráning: https://www.fbrh.co.uk/en/2-day-fbrh-gri-standards-certified-training-course-register-now-iceland
Dagskrá námskeiðsins: https://fbrh.co.uk/2-day-GRI-Standards-Certified-course-programme.pdf
Nánari upplýsingar um námskeiðið á ensku: https://www.fbrh.co.uk/en/2-day-fbrh-gri-standards-certified-training-course-about-iceland
Námskeiðslýsing: http://fbrh.co.uk/FBRH-GRI-Standards-Certifed-Course-Iceland.pdf
Nánari upplýsingar:
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, s. – tölvupóstur
Ágústa Þorbergsdóttir, s. 899 0088 – tölvupóstur
Melina Kourri (FBRH Client Service Manager) – tölvupóstur